A A A
Veftré
Valmynd Greinar/Pistlar Tenglar

Sólstafafréttir

Sólstafir vestfjarða, fjáröflun.

Sólstafir Vestfjarða munu vera með veglegt kaffihlaðborð á veitingastaðnum Amma Habbý á Ísafirði fyrsta sunnudag í aðventu, 29. nóv nk. kl 14-17.


Hlaðborðið mun svigna undan kræsingum sem vinir, vandamenn og aðrir velunnarar hafa verið svo vænir að gefa okkur. Er þetta liður í fjáröflun samtakanna fyrir áframhaldandi starfsemi.
Vonum við að þið sjáið ykkur fært um að mæta til að styrkja þetta góða málefni auk þess að njóta góðrar stundar með okkur.


Verð pr. fullorðinn kr. 1.500
Verð pr. barn kr. 500

Blátt áfram færir vestfirskum sveitafélögum viðurkenning 27. apríl nk.

Sveitarfélög á Vestfjörðum náðu því frábæra markiði að vera fyrst á landinu til að ná þeim áfanga að fræða 5% allra þeirra sem starfa með börnum og unglingum í byggðarlaginu um forvarnir gegn kynferðisofbeldi á börnum. Var það liður í vitundarvakningu Blátt áfram samtakanna. Sveitarfélögin sem hér um ræðir eru Bolungarvík, Hólmavík, Súðavík og Ísafjarðarbær.Blátt áfram samtökin eru gríðarlega ánægð með þennan árangur:
„Fyrst til að ná þessu marki voru sveitarfélög á Vestfjörðum. Nú er komið fordæmi um hugrekki og kjark fullorðinna sem vilja vera betur í stakk búin til að vernda börnin okkar. Starfskonur Sólstafa Vestfjarða tóku að sér af fullum krafti að annast fræðsluna á Vestfjörðum. Þær fengu styrki frá sveitarfélögum og fyrirtækjum á Vestfjörðum en einnig frá dóms- og kirkjumála-, heilbrigðis- og félagsmálaráðuneyti.“, segir í tilkynningu frá Blátt áfram. 

Á hálfu ári hafa tæplega 300 starfsfólk stofnana sem starfa með börnum á Vestfjörðum setið námskeið á vegum samtakanna. „Ótrúleg frammistaða hjá metnaðarfullum og hugrökkum konum sem sáu árangur og mikilvægi fræðslunnar í námskeiðinu „Verndarar barna“. Starfskonur Stólstafa hafa með þessu sannað að þetta er hægt og það á ekki lengri tíma“, segir í tilkynningu Blátt áfram. 

 

...
Meira

Áhugavert

20 ára afmæli Stígamóta

Við viljum vekja athygli á ráðstefnu Stígamóta þriðjudaginn 9. mars nk sem haldin er í tilefni af 20 ára afmæli samtakanna. 

Dagskrá hennar er eftirfarandi:

Nauðganir og viðbrögð samfélagsins við þeim

Ráðstefna í tilefni af 20 ára afmæli Stígamóta
Á Grand hóteli þriðjudaginn 9. mars 2010
Kl. 13-17
Fundarstýra er Guðrún Agnarsdóttir


  • Dómsmálaráðherra Ragna Árnadóttir opnar ráðstefnuna
  • Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann höfundur bókarinnar "Á mannamáli" ræðir nauðganir og hvers vegna konur leita ekki hjálpar vegna þeirra
  • Guðrún Jónsdóttir talskona Stígamóta segir frá umfangi nauðgana í starfi Stígamóta og hvað verði um þau nauðgunarmál sem þangað berast
  • Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður ræðir aðkomu réttargæslumanna af nauðgunarmálum
  • Lögreglustjórinn á Höfuðborgarsvæðinu Stefán Eiríksson segi frá afskiptum og meðferð lögreglu á nauðgunarmálum
  • Ríkissaksóknari Valtýr Sigurðsson segir frá aðkomu embættisins að nauðgunarmálum.
  • Ingveldur Einarsdóttir formaður Dómarafélags Íslands ræðir meðferð nauðgunarmála fyrir dómi
  • Umræður


Dagskrá sótt á heimasíðu Stígamóta



 

15 karlmenn verða ákærðir fyrir vændiskaup

Allt að 15 karlar verða á næstunni ákærðir fyrir vændiskaup. Það verður í fyrsta sinn sem lögum um þessa háttsemi verður beitt.


Alls er 15 karlmenn grunaðir um að hafa keypt vændi af Catalinu Ncoco og stúlkum sem hún gerði út. Mál karlanna tengist rannsókn lögreglu á Catalinu en hún er grunuð um mansal og vændisstarfsemi á höfuðborgarsvæðinu. Nokkrir þessara karla hafa þegar játað og er rannsókn málsins á lokastigi.


Með málinu verður brotið blað því þá reynir í fyrsta skiptið á lög sem banna kaup á vændi en þau voru sett á Alþingi í apríl í fyrra. Ísland varð þá þriðja landið á eftir Svíþjóð og Noregi til þess að setja lög af þessu tagi.


Karlarnir 15 sem nú eru til rannsóknar gætu átt von á allt að eins árs fangelsi. Samkvæmt heimildum fréttastofu er það þó ekki refsingin sem sumir þessara karla kvíða mest, heldur álitshnekkirinn sem mundi fylgja sakfellingunni.

...
Meira
Eldri fréttir
Á döfinni Tenglar
Vefumsjón