A A A
Veftré
Valmynd Greinar/Pistlar Tenglar

Unglingafræðsla á Hólmavík

Unglingafræðsla í grunnskólanum á Hólmavík 11. mars nk. kl 9:00

Fyrirlesturinn er ætlaður grunnskólanemendum.  Farið er í gegnum 7 skrefa bæklinginn og mikilvægi þess að leita sér hjálpar þó að það geti verið erfitt.  Staðreyndirnar eru ræddar, 1 af hverjum 5 stúlkum og 1 af hverjum 10 drengjum verða fyrir ofbeldi fyrir 18 ára aldur á Íslandi.  Þetta er byggt upp sem spjall við krakkana þar sem þau geta spurt og sagt hvað þeim finnst um þessi mál.  Farið er yfir hvað er kynferðislegt ofbeldi. Þau er hvött til að styðja við hvort annað til að leita sér hjálpar og tala um svona mál.  Einnig er talað um mikilvægi þess að vera virðingu fyrir sjálfum sér og öðrum.  Við tölum um okkar reynslu og afleiðingar þess að alast upp við ofbeldi og mikilvægi þess að finna leið til að segja frá.  Talað er um leiðir og úrræði sem í boði eru fyrir alla fjöskylduna. 

Harpa Oddbjörndóttir og Harpa Stefánsdóttir sjá um fyrirlesturinn.

Eldri fréttir
Á döfinni Tenglar
Vefumsjón