VB í Súðavík 17. mars nk.
Námskeið haldið fyrir starfsmenn leik- og grunnskólans í Súðavík.
Námskeiðið Verndarar barna boðar byltingu í fræðslu, forvörnum og viðbrögðum við kynferðislegri misnotkun á börnum. Markmiðið er að veita fullorðnu fólki öfluga fræðslu og markvissa þjálfun í að fyrirbyggja, þekkja og bregðast við kynferðislegri misnotkun barna af hugrekki og ábyrgð. Námsefnið Verndarar barna er sérhannað fyrir stofnanir, fyrirtæki og félagasamtök sem þjóna börnum og unglingum – sem og einstaklinga sem bera ábyrgð á umönnun og verndun barna; sínum eigin eða annarra. Efnið byggist á 7 skrefa bæklingnum til verndar börnunum okkar. Innifalið í verði er verkefnabók og stefnumótunarupplýsingar fyrir félagasamtök, stofnanir og fyrirtæki sem vinna með börnum.Námsefnið er íslensku og fræðslumyndbandið er á ensku en með íslenskum texta.Leiðbeinandi: Harpa Oddbjörnsdóttir

