A A A
Veftré
Valmynd Greinar/Pistlar Tenglar

VB námskeið á Þingeyri 11. mars kl 14:30

Námskeið haldið fyrir starfsmenn grunnskólans á Þingeyri.

Námskeiðið Verndarar barna boðar byltingu í fræðslu, forvörnum og viðbrögðum við kynferðislegri misnotkun á börnum. Markmiðið er að veita fullorðnu fólki öfluga fræðslu og markvissa þjálfun í að fyrirbyggja, þekkja og bregðast við kynferðislegri misnotkun barna af hugrekki og ábyrgð. Námsefnið Verndarar barna er sérhannað fyrir stofnanir, fyrirtæki og félagasamtök sem þjóna börnum og unglingum – sem og einstaklinga sem bera ábyrgð á umönnun og verndun barna; sínum eigin eða annarra.  Efnið byggist á 7 skrefa bæklingnum til verndar börnunum okkar.  Innifalið í verði er verkefnabók og stefnumótunarupplýsingar fyrir félagasamtök, stofnanir og fyrirtæki sem vinna með börnum.Námsefnið er íslensku og fræðslumyndbandið er á ensku en með íslenskum texta.

Leiðbeinandi : Lísbet Harðardóttir

 

Eldri fréttir
Á döfinni Tenglar
Vefumsjón