20 ára afmæli Stígamóta
föstudagurinn 19. febrúar 2010 - Harpa Oddbjörnsdóttir
Við viljum vekja athygli á ráðstefnu Stígamóta þriðjudaginn 9. mars nk sem haldin er í tilefni af 20 ára afmæli samtakanna.
Dagskrá hennar er eftirfarandi:
Dagskrá hennar er eftirfarandi:
Nauðganir og viðbrögð samfélagsins við þeim
Ráðstefna í tilefni af 20 ára afmæli Stígamóta
Á Grand hóteli þriðjudaginn 9. mars 2010
Kl. 13-17
Fundarstýra er Guðrún Agnarsdóttir
- Dómsmálaráðherra Ragna Árnadóttir opnar ráðstefnuna
- Þórdís Elva Þorvaldsdóttir Bachmann höfundur bókarinnar "Á mannamáli" ræðir nauðganir og hvers vegna konur leita ekki hjálpar vegna þeirra
- Guðrún Jónsdóttir talskona Stígamóta segir frá umfangi nauðgana í starfi Stígamóta og hvað verði um þau nauðgunarmál sem þangað berast
- Þorbjörg Inga Jónsdóttir lögmaður ræðir aðkomu réttargæslumanna af nauðgunarmálum
- Lögreglustjórinn á Höfuðborgarsvæðinu Stefán Eiríksson segi frá afskiptum og meðferð lögreglu á nauðgunarmálum
- Ríkissaksóknari Valtýr Sigurðsson segir frá aðkomu embættisins að nauðgunarmálum.
- Ingveldur Einarsdóttir formaður Dómarafélags Íslands ræðir meðferð nauðgunarmála fyrir dómi
- Umræður

