A A A
Veftré
Valmynd Greinar/Pistlar Tenglar

Forvarnir

Starfskonum Sólstafa fannst ekki nægilegt að takast eingöngu á við afleiðingar kynferðisofbeldis. Grunnurinn væri að reyna að koma í veg fyrir að slíkt ofbeldi eigi sér stað, opna umræðuna um það og virkja fullorðið fólk til ábyrgðar. Forvarnir snúast um fræðslu.  Fræðslu fyrir börnin, unglingana, foreldra og aðstandendur og kynferðisafbrotamennina og konurnar.

Samtökin Blátt áfram fóru af stað með forvarnarátak og fannst okkur það tilvalið og henta vel að okkar starfsemi. Þrjár starfskonur Sólstafa fóru á námskeið hjá Blátt áfram og lærðu að leiða námskeiðið Verndarar barna.
 En námskeiðið Verndarar barna boðar byltingu í fræðslu, forvörnum og viðbrögðum við kynferðislegri misnotkun á börnum. Markmiðið er að veita fullorðnu fólki öfluga fræðslu og markvissa þjálfun í að fyrirbyggja, þekkja og bregðast við kynferðislegri misnotkun barna af hugrekki og ábyrgð. Námsefnið Verndarar barna er sérhannað fyrir stofnanir, fyrirtæki og félagasamtök sem þjóna börnum og unglingum – sem og einstaklinga sem bera ábyrgð á umönnun og verndun barna; sínum eigin eða annarra.  Efnið byggist á 7 skrefa bæklingnum til verndar börnunum okkar.  Innifalið í verði er verkefnabók og stefnumótunarupplýsingar fyrir félagasamtök, stofnanir og fyrirtæki sem vinna með börnum. 

Fréttasafn

Eldri fréttir
Á döfinni Tenglar
Vefumsjón